Heimildir þar sem rökstutt er að Ísrael fremji þjóðarmorð í Palestínu
Opinber skjöl, skýrslur, yfirlýsingar og blaðagreinar Palestínumenn, bæði fræðafólk og aðrir hafa fyrir löngu lýst ofbeldi og landráni Ísraels í Palestínu sem þjóðarmorði. Þeirra skrif eru marktæk og rétt. Hér hef ég þó tekið saman heimildir annarra. Það er líklega mest vegna þess að margt fólk í Evrópu og Vesturlöndum almennt treystir ekki frásögnum eða greiningu fólks sem ekki er þaðan sjálft, og sér í lagi treystir það ekki Palestínufólki. Á eftirfarandi lista eru því meðal annars skrif eftir gyðinga sem eru virtir fræðimenn á sviði helfarar- og þjóðarmorðsfræða, auk vestrænna lögfræðinga, það er fræðafólks, starfandi lögmanna og dómara. Ákæra Suður Afríku (pdf) fyrir Alþjóðadómstólnum í janúar 2024. Munnlegur málflutningur vegna kröfu Suður Afríku um auknar bráðabirgðaaðgerðir í maí 2024 (pdf). Francesca Albanese: Anatomy of a Genocide: Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights in the Palestinian territories occupied since 1967. https://www.un.org/uni